- Þrátt fyrir allt er þó öryggi okkar víða teflt í tvísýnu.
- Í fyrsta lagi er lífið á jörðinni háð því að við förum vel með auðlindirnar.
- Við megum hvorki ofnýta þær með rányrkju né spilla þeim með mengun.
- Engar nýjar uppgötvanir geta til dæmis fært Íslendingum súrefni í lungun ef suður-amerísku regnskógunum er eytt.
- Hið sama gildir um vatnið.
- Ef því er spillt varanlega geta hreinsistöðvar okkar mannanna engan veginn gert það neysluhæft á nýjan leik
- Í annan stað er velmegun okkar Vesturlandabúa að hluta til byggð á rányrkju og misskiptingu lífsins gæða á jörðinni.
- Stóran hluta af hráefnunum sem við nýtum fáum við til dæmis frá Afríku, Asíu og Suður-Ameríku.
- Ríku þjóðirnar hafa nýtt þennan auð gömlu nýlendnanna öldum saman án þess að heimamenn hafi fengið sinn hluta teknanna í eigin vasa.
- Ólíklegt er að þróunarlöndin sætti sig við þetta misrétti framvegis.
- Í þriðja lagi hafa nýjungar nútímans ekki endilega fært okkur meiri hamingju.
- Hinar svokölluðu framfarir snúast nefnilega flestar um verðmæti sem mölur og ryð geta grandað.
- Þrátt fyrir allt strit mannanna er lífsgátan enn óleyst.